|
24.07.2009 14:50:11 / halldorogelin
Áhugasamir ættu að líta á http://www.nino.is/halldorsson
»
09.07.2009 09:28:36 / halldorogelin
Besti dagur lífs míns var í gær. Besta stund lífs míns var rétt yfir átta að kvöldi. Besta stund lífs míns var í Kaupmannahöfn. Ég og Elín vorum að eignast okkar fyrsta barn. Móður og barni heilsast mjög vel. Drengurinn vóg 3592g og var 52cm. Myndir og annað verður sett inn þegar við höfum tíma til þess.
»
04.07.2009 23:44:13 / halldorogelin
Það besta sem hefur skeð i lífi mínu so far hefur skeð.......við fjárfestum í viftu í dag. Þvílíkur unaður að fá smá kaldann blástur, það er alveg ótrúleg tilfining. Annars fer að styttast í stubb. Settur á morgun en eitthvað grunar mig að hann komi ekki fyrr en á fimtudaginn í fyrsta lagi. Jæja, sjáum bara til
»
01.07.2009 06:27:03 / halldorogelin
Mest lítið að frétta. Erum bara að bíða eftir að stubbur fari að láta sjá sig, en núna er þetta að verða dagaspursmál en ekki vikuspursmál. Annars erum við skötuhjú að drepast úr hita hérna. Hitinn og góða veðrir gerir útaf við mann, og sér í lagi vegna þess að Danir hafa ekki uppgötvað að til er uppfinning sem heitir vifta. Þetta þarfaþing fyrirfinnst hvergi, nema þá í stöku verslun.
»
19.06.2009 19:13:18 / halldorogelin
Við erum semsagt að fara að flytja í nýja, betri og ódýrari íbúð í byrjun ágúst!!!!! Það er ekkert leyndarmál að við vorum allt annað en ánægð með íbúðina og staðinn hérna og erum því í skýjunum yfir því að vera komin með aðra íbúð. Hún er á kollegíinu Solbakken sem er meira fjölskylduvænt og bara betra í alla staði. Við getum ekki beðið eftir að flytja.
»
13.06.2009 15:48:46 / halldorogelin
Elín; Ég var búin að bíða eftir að fara á tónleika með James Morrison í tívolíinu í tvo mánuði, það kom bara ekkert annað til greina en að fara. Nokkrum dögum fyrir tónleikana fór ég hins vegar að velta því fyrir mér hvort ég væri yfir höfuð fær um það. Ég á erfitt með að standa kyrr í nokkrar mínútur án þess að fá illa í bakið hvað þá í næstum tvo tíma. Annaðhvort yrði ég að geta sest niður eða sleppa því að fara á tónleikana og það bara kom ekki til greina. Það voru því góð ráð dýr. Ég hef samband við tívolíið og spyr hvort það sé einhver leið fyrir mig að sitja og njóta tónleikanna. Það eina sem henni datt í hug til að byrja með var að panta borð á veitingastöðum rétt við sviðið en það kostaði morðfjár. Loksins kom hún með þá hugmynd að hægt væri að fá hjólastól lánaðan í tívolíinu. Ég var svolítið hikandi, taldi mig nú ekki vera svo örkumla en eftir smá íhugun þá ákvað ég láta taka frá hjólastól fyrir mig. HJÓLASTÓL!! Jæja ég gæti alla vega notið tónleikanna. Við fórum því í hellirigningu í gær í tívolíið, plöntuðum stólnum á ágætum stað og hlustuðum á rosa góða tónleika. Ég verð samt að viðurkenna að sumir ráku upp ansi stór augu þegar ég stóð upp úr hjólastólnum í þau ófáu skipti sem ég þurfti á klósettið. Reyndi bara að láta fólk sjá að ég var ólétt til að fá kannski pínu samúð hehe. Þetta var rosa skrítið. En tónleikarnir voru góðir (ég reyndar kannski naut þeirra aðeins betur en Dóri við erum með svolítið ólíkan tónlistarsmekk,hehe) og ég sé ekki eftir að hafa farið þó það hafi verið ískalt og hellirigning mest allan tímann.
»
10.06.2009 21:13:37 / halldorogelin
»
01.06.2009 14:33:42 / halldorogelin
Það er búið að vera yfir 25 stiga hiti og varla skýblettur á himni í dag og það er ekkert lát á það er ennþá steikjandi hiti þó klukkan sé orðin hálf fimm. Við Dóri skelltum okkur í morgun til Charlottenlund á ströndina þar með góðar bækur að lesa og nesti. Fundum okkur góðan stað lögðum niður handklæði og vorum þar dágóða stund og höfðum það gott. Ég potaði tánni aðeins í sjóinn og hann var nokkuð kaldari en ég bjóst við þannig að það fór ekkert meira ofaní en bara hin táin Við röltum síðan aðeins um og vorum bara að koma heim núna rétt áðan, eiginlega bara feginn að vera komin inn í forsæluna. Það er alveg steikjandi hiti úti næstum því of mikið af því góða.
Það eru ansi margir frídagar núna. Dóri fer að vinna aftur á morgun en síðan er hann í fríi á föstudaginn þannig að það eru tvær langar helgar í röð, bara snilld sko. Annars þarf ég að hanga að mestu inni við að lesa og klára fyrirlestra sem ég á að vera með í tveimur munnlegum prófum í júní. Ég vil klára þá sem fyrst því sá seinni er í lok júní og þar er aldrei að vita hvenær krílið ákveður að koma í heiminn. Þannig að það er kannski gáfulegast að vera búin með sem mest sem fyrst og reyna svo að slappa aðeins, af eins og langt og það nær.
p.s það eru svo margir sem vilja fá að sjá bumbumyndir, okkur finnst frekar óþægilegt að setja þær á bloggsíðuna en ef þið viljið endilega sjá myndir, kommentið þá bara með tölvupóstfangið ykkar og við skulum bara senda ykkur.
Annars bara kærar kveðjur hér úr hitanum í Danmörku 
»
30.05.2009 18:14:42 / halldorogelin
Malmö í dag. nærri 11 tíma ferðalag á okkur skötuhjúum. Keyptum ódýr föt og annað tilbehör. Hrein snilld. Í kvöld er það aflsappelsi yfir imbanum, en þó ekki yfir sænsku rásunum. Ég mun aldrei gleyma orðinu jordbærgubb svo lengi sem ég lifi. Ég hugsa til þessa orðs nær alltaf þegar ég sé Svíagula litinn. Annars allt í fína að frétta. Ég er með vinnu og verð með áfram. Heilsan góð, að undanskyldum hnjám, ökklum og baki.
Hvað er annars að frétta af elítuliðinu annarsstaðar á hnettinum? Það væri gaman að fá að heyra hvað aðrir hafa að segja, þó það sé ekki nema bara "hæ".
»
16.05.2009 16:42:55 / halldorogelin
Það er rigning í Danaveldi, það hefur ekki rignt almennilega í nokkrar vikur, á meðan fáið þið bongóblíðu í Íslandi . Júróvisjón í kvöld og ég (Elín) ætla ekki að missa af því er algjör lúði hvað þetta varðar, býst við því að Dóri fylgist með með öðru auganu en ekki mikið meira en það. Ég hef nú ekki tekið eftir miklum áhuga á þessu hérna, allavega ekki eins og á Íslandi. Þó það sé rigning þá ætlum við samt að grilla smá í kvöld. Dóri er að jafna sig eftir partý hjá handboltaliðinu (alltaf stuð sko) í gærkvöldi þannig að það er voða rólegt hjá okkur. Annars bara áfram Ísland!! 
»
10.05.2009 18:41:18 / halldorogelin
Það er búið að vera nóg að gera hjá okkur eins og venjulega. Ég er búin að sitja sveitt yfir ritgerðum sem ég þarf að skila á miðvikudaginn. Búin að þurfa að sitja inni í sólinni síðustu vikurnar. Skaust heim til Íslands í nokkra daga fyrir tveim vikum. Ég fór héðan úr 20 stiga hita í 5 stiga hita, rok og rigningu, Ísland gotta love it Við fórum í ferð í IKEA í gær og fjárfestum í barnarúmi og kommóðu þannig að við erum bara að verða nokkuð klár fyrir nýja fjölskyldumeðliminn. Við settum barnarúmið inni í geymslu og það verður ekki sett saman fyrr hann er kominn í heiminn (við erum svo hjártrúafull). Annars erum við bara að reyna að njóta sumarsins. Fórum í langan göngutúr í dag, það er ólýsanlega erfitt að þurfa að vera inni nær allan daginn, þannig að ég dreg Dóra greyið oftast út í göngutúr þegar hann er búinn í vinnunni og ég hætt að læra þó hann sé búinn að vera úti allan daginn í vinnunni, hehe. Annars bara knús og kossar frá sólinni í Köben
»
24.04.2009 23:11:11 / halldorogelin
Aðstæður: Þrír karlmenn, flottir bíceppar, spentir vöðvar, möllet og mottur og svo eitthvað sem heitir Strap Match. Hver getur giskað á hvað það er sem ég er að lýsa??? Btw, þetta er sýnt á Eurosport. Hér er um að ræða hina göfugu íþrótt Sjómann. Flottir fíarar með mullett og mottur....og meira að segja rauðhærðir í þokkabót. Kræst hvað dagskráin er fátækleg á að líta í kveld
»
22.04.2009 16:28:36 / halldorogelin
Það er alltaf gaman í köben... sérstaklega þegar mikill er hasarinn ( http://jp.dk/indland/krimi/article1670327.ece ). Við vorum þarna á röltinu ekki fyrir svo löngu síðan og þá var allt með ró og spekt og mikið fjör og gaman í garðinum þar sem þetta gerðist.
»
10.04.2009 17:18:52 / halldorogelin
Mér leiddist aðeins þannig að ég prófaði að googla Örra. Fann þetta eftir smá gúggl http://web2.toto.is/fritest/afr/keppendur/kep42106.htm Gaman að vita að Örri var einusinni hlaupagikkur    Og svo fann ég þetta um sjálfan mig; http://www.eurohandball.com/ec/cwc/men/2007-08/player/531767/HalldorArason
»
09.04.2009 20:56:35 / halldorogelin
Enn einn hundleiðinlegur dagur liðinn. Ekki byrjaði hann nú vel, vakinn af sólskini inn um gluggann og svo tók á móti manni ca. 15 stiga hiti....ekkert sem fer eins mikið í taugarnar á mér. Við hjúin byrjuðum svo daginn á því að athuga hvað við gætum gert fyrst að ég er kominn í 5 daga frí og svona. Það skásta af öllu sem okkur datt í hug var ferð yfir til Malmö. Jæja, við fórum af stað uppúr hádegi að heiman og vorum komin yfir til Malmö um eitt leytið. Svo tók við nokkra klukkutíma rölt um miðbæinn, keyptum föt og skó og svona, fórum á Subway og hyggeðum aðeins þarna. Fundum svo svona la la nammibúð þar sem var alltof mikið úrval af nammi, sætabrauði og öðru góðgæti...ekki gott fyrir fólk með valkvíða. Fórum svo rétt fyrir 6 á Jensens Böfhus og fengum þar ágætis mat á ágætis verði. Vorum þar í hátt í tvo tíma. Svo tók við ferð heim, lögðum af stað um hálf átta um kvöldið og skriðum svo heim uppí sófa rétt fyrir háf tíu. Ég er vel steiktur eftir daginn og Elín alveg að deyja úr þreytu. Ég nenni ekki að skrifa meira um þessa frekar slöppu ferð þannig að ég læt staðar numið. Einsog með fyrri færstu þá á að taka hana með fyrirvara um kaldhæðni sem og tillitssemi vegna allra þeirra dyggu lesanda þessara síðu sem að hýrast í snjóhúsunum sínum á klakanum. Og vegna efnahagsástandsins á Íslandi var heldur ekki nefnt hversu fáránlega ódýr þessi dagur var  Edit: Ég gleymdi að minnast á eitt sem að mér og Elínu fannst alveg óborganlega fyndið. Á Böfhusinu hans jensens fengum við okkur pönnukökur með ís og jarðaberjasultu. Þegar kom að því að velja á pönnsurnar (hægt að velja á milli súkkulaðis og jarðaberjasultu) vorum við spurð hvort við vildum x (súkkulaði) eða "jordbergubb".....jordberGUBB??? Við misstum það gjörsamlega. Ætli gubbið á Íslandi sé jafn gott og gubbið á Svíþjóð???? Edit aftur: Svo má ekki gleyma því sem við gengum framá á leiðinni heim. Þá var löggan að því er virtist vera að taka til eftir bankarán sem hafði verið framið rétt hjá staðnum sem við höfðum borðað kvöldmat.
»
Síður: 1 2 3 4
|